Ný síða!
Komin með nýja síðu
http://ragnheidursylvia.bloggar.is
Verið svo dugleg að commenta þið þarna!!!!
Komin með nýja síðu
Í augnablikinu er Barcelona undirlögð af hátíðarhöldum. Þeir láta sér ekkert duga einn dagur, neineinei, þeir þurfa heila helgi í þetta. Þetta er hátíð La Mercé sem er dýrlingur. Á hverju götuhorni er eitthvað að gerast, ég hef séð 8 útisvið víðsvegar um borgina sem og að hver einasti bar eða veitingarstaður er pakkaður af fólki. Flestir láta sér þó bara nægja að planta sér á næsta götuhorn og bíða eftir að einhver komi og bjóði þeim kaldan bjór rétt yfir kostnaðar verði.
Stundartaflan mín hérna er loksins tilbúin og talandi um slæmar stundartöflur þá ættuð þið að sjá þessa! Ég er t.d. í skólanum á mánudögum frá 8:30-11:30 og síðan ekkert allan daginn fyrr en 19:30-21:00!!! Hver hefur tíma til níu á kvöldin aðrir en spánverjar!?! Svona er nánast öll vikan hjá mér, og stysta hlé á milli tíma er 3 1/2 timi og það er bara talið mjög fínt.
Nú er ég búin að fara í einn tíma í skólanum. Þessi áfangi sem ég fór í er um suður amerískar bókmenntir en á kynningunni er þetta meira bara svona suður-amerísk menning.
Jæja þá er ég komin til Barcelona!
Var að koma heim úr ferð í kaupstað norðursins. Feðginin voru bara tvö saman og fóru í leikhús og grilluðu og höfðu það alveg hrikalega notalegt!